Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Miðflokksins eykst um tæplega tvö prósentustig, en tæplega 9% segjast myndu kjósa Miðflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Breytingar á fylgi annarra flokka eru tölfræðilega ómarktækar. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn minnkar um tvö prósentustig milli mánaða en tæplega 24% segjast myndu kjósa flokkinn. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,3 – 1,2 prósentustig. Nær 17% segjast myndu kjósa Vinstri græn, rúmlega 15% Samfylkinguna, um 12% Pírata, nær 7% Viðreisn, um 6% Flokk fólksins og rúmlega 2% aðra flokka, þar af 1,3% Bjarta framtíð.

Fylgi flokka feb 2018

Tæplega 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og nær 6% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um tæplega 7 prósentustig milli mánaða, en 64% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 28. febrúar 2018. Heildarúrtaksstærð var 5.564 og
þátttökuhlutfall var 55,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup