Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna frá síðasta Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Bjartrar framtíðar lækkar um tæp 2 prósentustig og segjast rúmlega 1% myndi kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,0 - 1,9 prósentustig.

Fylgi flokka okt 2017

Rúmlega 23% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram nú, tæplega 23% Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 13% Samfylkinguna, nær 11% Pírata, rösklega 9% Miðflokkinn, ríflega 7% Framsóknarflokkinn, næstum 6% Viðreisn, nær 6% Flokk fólksins og um 0,5% Alþýðufylkinguna.

Tæplega 7% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og liðlega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 13. til 19. október 2017. Heildarúrtaksstærð var 2.870 og þátttökuhlutfall var 59,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-2,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup