Aðferðir og spurningavagnar

 

Starfsfólk Capacent Rannsókna býr yfir áratuga reynslu og þekkingu á sviði rannsókna sem gerir okkur kleift að velja þær rannsóknaraðferðir sem best eiga við hverju sinni. Mjög margir þættir hafa áhrif á hvaða aðferð er beitt. Þess vegna vinna ráðgjafar okkar náið með viðskiptavinum og velja þannig hentugustu aðferðina með tillliti til þess sem leita á svara við eða þess vandamáls sem vinna þarf á.

Hjá okkur vinna sérfræðingar sem eru sérmenntaðir í megindlegum (e. quantitative) og eigindlegum (e. qualitative) rannsóknum. Við erum með glæsilega aðstöðu fyrir rýnihópa og fullkomið úthringiver, ásamt ferlum sem tryggja trúnað og gæði í hvívetna við undirbúning, framkvæmd, úrvinnslu og skýrslugerð.

Allar þær aðferðir sem við notum eru viðurkenndar af ESOMAR sem eru alþjóðleg samtök fólks sem starfar í markaðs- og viðhorfsrannsóknum. Capacent hefur unnið að upptöku ISO 9001 gæðastaðalsins undanfarin ár og fékk fyrirtækið opinbera ISO vottun í júní 2004. Gæðastaðallinn tekur til allrar starfsemi Capacent Rannsókna.

Helstu aðferðir sem Capacent notar eru símakannanir, netkannanir, eigindlegar aðferðir, póstkannanir,  hulduheimsóknir og vettvangskannanir. Val á rannsóknaraðferð fer eftir viðfangsefninu hverju sinni.

Ein vinsælasta leiðin til að fá skjót svör við brennandi spurningum er að setja þær í spurningavagna Capacent. Ráðgjafar okkar aðstoða við að setja upp spurningar og tryggja að þær séu rétt úr garði gerðar með tilliti til aðferðafræðilegra sjónarmiða.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is


Print Bookmark and Share