Rannsóknir eru snar þáttur í starfi fyrirtækja og opinberra aðila Fyrirtæki byggja afkomu sína á markaði og því er nauðsynlegt að fylgjast með honum og skilja eðli hans svo varast megi ógnanir og grípa tækifærin. Nútímaþjóðfélag kallar á að opinberar stofnanir og fyrirtæki kanni stöðu sína og viðhorf viðskiptavina ekki síður en einkafyrirtæki.
Capacent leitast við að bjóða upp á bestu mögulegu lausnir við að nálgast þær upplýsingar sem fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök þurfa til að ná betri árangri.
Til dæmis má með rannsóknum skoða hver markaðshlutdeild fyrirtækis er, hverjir eru keppinautar þess og hver styrkur fyrirtækis og veikleikar á markaði eru miðað við keppinautana. Hver er ímynd fyrirtækisins eða stofnunarinnar meðal viðskiptavina og annarra markhópa? Eru viðskiptavinir eru ánægðir með vöru eða þjónustu fyrirtækisins eða stofnunarinnar? Hvar liggja sóknartækifærin og hvað þarf til að viðskiptavinir verði tryggari?
Við hjá Capacent Rannsóknum beitum fjölda aðferða við að svara ofangreindum spurningum; bæði megindlegum aðferðum (quantitative) og eigindlegum (qualitative). Þar á meðal eru spurningakannanir, rýnihópar, djúpviðtöl, vettvangsathuganir, hulduheimsóknir, þjónustuúttektir o.fl. Sníða má rannsóknir að þörfum hvers fyrirtækis fyrir sig hvað snertir viðfangsefni rannsóknar og hópinn sem rannsaka á.