Nokkrar breytingar hafa orðið á fylgi flokka frá því seinni partinn í september samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup. Miðflokkurinn kemur sterkur inn og fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar eykst. Á sama tíma hefur fylgi við Framsóknarflokkinn, Flokk fólksins og Bjarta framtíð minnkað.

Fylgi flokka sept 2017

Rösklega 9% segjast myndu kjósa Miðflokkinn færu kosningar til Alþingis fram nú, en framboðið kom fram undir lok síðasta könnunartímabils. Ríflega 13% myndu kjósa Samfylkinguna sem er aukning um fjögur prósentustig og nær 5% myndu kjósa Viðreisn. Fylgi Flokks fólksins minnkar um ríflega 4 prósentustig frá því í síðustu mælingu og Framsóknarflokksins um næstum 3 prósentustig. Rúmlega 7% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn nú og nær 6% Flokk fólksins. Fylgi Bjartrar framtíðar er einnig lægra nú en seinni hluta september, en 3% segjast myndu kjósa flokkinn. Ekki er marktæk breyting á fylgi annarra framboða. Nær 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 23% Vinstri græn, tæplega 9% Pírata, 0,5% Dögun, 0,2% Alþýðufylkinguna og 0,1% Íslensku þjóðfylkinguna.

Slétt 13% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og nær 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 29. september til 12. október 2017. Heildarúrtaksstærð var 3.876 og þátttökuhlutfall var 59,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,8-0,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup