Nokkrar breytingar hafa orðið á fylgi flokka í Reykjavík miðað við síðustu borgarstjórnarkosningar. Nýtt framboð Vinstrisins á sterka innkomu ásamt því að fylgi Miðflokksins og Viðreisnar hefur aukist nokkuð á sama tíma og fylgi Framsóknarflokks og Pírata hefur minnkað mikið. Tæplega 28% kysu Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag, rúmlega 23% Samfylkinguna, rösklega 13% Vinstrið, næstum 11% Miðflokkinn, slétt 10% Viðreisn, nær 4% Framsóknarflokk og Flokk fólksins, ríflega 3% Pírata, tæplega 3% Sósíalistaflokk Íslands og rösklega 1% Okkar borg.

Næstum 8% myndu skila auðu eða ekki kjósa og 18% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Þess ber að geta að Góðan daginn framboðið kom fram undir lok könnunartímans og enginn nefndi það framboð eftir að það bættist við.

Ef borgarfulltrúm er skipt út frá niðurstöðu þessarar könnunar fengi Sjálfstæðisflokkur sjö borgarfulltrúa, Samfylkingin sex fulltrúa, Vinstrið og Miðflokkur þrjá fulltrúa hvor, Viðreisn tvo fulltrúa og Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins sinn hvorn fulltrúann.

Borgarfylgi_150426

Nánari upplýsingar um könnina má sjá hér