Helsta breyting á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Miðflokks eykst um 2 prósentustig. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,2-1,6 prósentustig. Rúmlega 29% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, nær 25% Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 17% Miðflokkinn, 10% Viðreisn, liðlega 6% Framsóknarflokkinn, næstum 4% Flokk fólksins, rösklega 3% Vinstri græn, tæplega 3% Sósíalistaflokk Íslands og rúmlega 2% Pírata.

