Helsta breyting á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi við Viðreisn minnkar um tæplega 2 prósentustig. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,3 - 1,7 prósentustig. Tæplega 30% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, nær 27% Sjálfstæðisflokkinn, tæplega 16% Miðflokkinn, næstum 10% Viðreisn, tæplega 6% Framsóknarflokkinn, nær 5% Flokk fólksins, tæplega 4% Vinstri græn, rösklega 2% Sósíalistaflokk Íslands og um 2% Pírata.

Nær 5% myndu skila auðu eða ekki kjósa og 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_agust2026_Throunarmynd


Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér