Stjórnendaráðgjöf Gallup hélt nýverið morgunverðarfund í húsakynnum Travel Connect þar sem sjónum var beint að helgun starfsfólks, trausti og því hvað starfsfólk og stjórnendur þurfa til að ná árangri í síbreytilegu umhverfi.

Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnendaráðgjafi frá Gallup hélt erindið „Helgun starfsfólks – grunnur að sterkari vinnustað“, þar sem fjallað var um hugmyndafræðina að baki Q12 og hvað rannsóknir Gallup segja okkur um tengsl helgunar starfsfólks og árangurs skipulagsheilda.

Rannveig Gústafsdóttir, stjórnendaráðgjafi, tók síðan við með erindinu „Q12 í breytilegum heimi“ og fjallaði um hvað starfsfólk þarf til að ná árangri í umróti breytinga og hvaða hlutverki stjórnendur gegna í að skapa skýrleika, stuðning í þeim aðstæðum.

Undir yfirskriftinni „Traust á tímum breytinga“ deildu síðan Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Travel Connect, og Magnús Freyr Erlingsson, framkvæmdarstjóri hjá ICS, reynslu fyrirtækisins um hvernig hægt er að viðhalda og efla helgun á tímum umbreytinga. Milla fjallaði um hvernig Travel Connect nálgast breytingar almennt og Magnús Freyr færði umræðuna nær daglegu starfi með raundæmum úr eigin starfi hjá Travel Connect.

Samspil þessara sjónarhorna skapaði góða tengingu milli rannsókna og framkvæmdar. Breytingar geta tekið á sig ólíkar myndir en þegar óvissa eykst verða skýrleiki, samtal, stuðningur og traust enn mikilvægari.

Kærar þakkir til Travel Connect fyrir að deila reynslu sinni með okkur og fyrir frábærar móttökur í glæsilegu húsnæði.

Hvernig getur Q12 stutt við stjórnendur og teymi á tímum breytinga?
Kynntu þér Gallup Access og Stjórnendaráðgjöf Gallup

Pallborð: Magnús, Milla og Auðunn