Fleira fólk hlynnt uppbyggingu gagnavera á Íslandi en andvígt.

Spurt var: Gagnaver eru byggingar eða húsnæði þar sem tölvum og tölvubúnaði er komið fyrir til að geyma, vinna og miðla stafrænum gögnum. Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú uppbyggingu gagnavera á Íslandi?

Spurningin var lögð fyrir 800 manns úr viðhorfahópi Gallup sem telur um 30 þúsund manns. Af þeim tóku 775 afstöðu. Tæplega 42% eru hlynnt og nærri 29% andvíg. Nærri 30% sögðust hvorki hlynnt né andvíg. Gögnin eru vigtuð til þess að endurspegla þjóðina með tilliti til kyns, aldurs og búsetu.

2026-11-23 14_39_55-Gagnavert

Í könnun Gallup í Bandaríkjunum frá því í mars sögðust sjö af hverjum tíu vera andvígir byggingu gagnavera í sinni heimabyggð, þar sem nærri helmingur var mjög andvígur. Algengustu ástæður andstöðu fólks voru neikvæð áhrif gagnavera meðal annars á vatns- og orkunotkun (Americans Oppose AI Data Centers in Their Area).

Í Bandaríkjunum hefur bygging gagnavera orðið að heitu pólítísku deilumáli. Í bandarísku þingkosningunum var víða kosið um gagnaver og í miklum meirihluta völdu kjósendur að setja uppbyggingu þeirra skorður (Data center-related ballot measures, 2026 – Ballotpedia).

Í útgöngukönnun NBC (e. exit polling) eftir bandarísku þingkosningarnar sögðu 56% að gervigreindar gagnaver hefðu verið veigamikill þáttur í ákvörðun fólks um hvernig það varði atkvæði sínu (NBC exit poll: 56% say AI data centers were a crucial or major factor in Congressional vote decision – DCD)

Evrópa er mikill eftirbátur Bandaríkjanna á sviði gervigreindar, en Evrópusambandið hefur í hyggju að verja 200 milljörðum evra til að setja upp 19 „gervigreindarverksmiðjur“ og fimm risagagnaver víða um Evrópu sem hluta af aðgerðaráætlun sambandsins (AI continent - European Commission).