Helsta breyting á fylgi flokka milli mánaða er að fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um 2 prósentustig. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0 - 1,2 prósentustig. Nær 31% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, næstum 25% Sjálfstæðisflokkinn, 15% Miðflokkinn, tæplega 11% Viðreisn, um 6% Framsóknarflokkinn, 4% Flokk fólksins, næstum 4% Vinstri græn, tæplega 3% Pírata og rösklega 2% Sósíalistaflokk Íslands.

Ríflega 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rösklega 11% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_sept2026_Throunarmynd


Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér