Helstu breytingar milli mánaða eru að fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um nær 2 prósentustig. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,4-1,6 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Tæplega 29% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, ríflega 21% Sjálfstæðisflokkinn, nær 19% Miðflokkinn, tæplega 11% Viðreisn og rúmlega 5% Framsóknarflokk, Flokk fólksins og Vinstri græn. Liðlega 2% segjast myndu kjósa Pírata og Sósíalistaflokk Íslands.

Ríflega 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_april2026_Throunarmynd


Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér