Í lokakönnun Gallup sem var birt 27. ágúst voru fleiri sem sögðu nei en já. Munurinn á hlutfalli þeirra sem sögðu nei og já var ekki tölfræðilega marktækur en hlutfall þeirra sem sögðu nei hafði hækkað aðeins frá fyrri könnunum Gallup.
Frávikið frá niðurstöðu þjóðaratkvæagreiðslunnar var einungis 1,2 prósentustig sem er mjög lítið frávik og vel innan vikmarka
Árangur kannana byggir á þátttöku almennings. Við þökkum öllum sem gefa sér tíma til að svara könnunum Gallup. Með því að svara af heilindum leggja þátttakendur sitt af mörkum til upplýstrar umræðu og ákvarðanatöku í samfélaginu.

