Ný skýrsla Gallup sýnir að helgun starfsfólks minnkar á heimsvísu – kostar heimsbúskapinn um 10 milljarða dollara í tapaðri framleiðni
Reykjavík, apríl 2026 – Stjórnendaráðgjöf Gallup kynnti niðurstöður nýjustu alþjóðlegrar rannsóknar Gallup nú í morgun, State of the Global Workplace 2026. Rannsóknin mælir upplifun, líðan og helgun starfsfólks í meira en 140 löndum.
Helgun starfsfólks (employee engagement) á heimsvísu minnkaði í 20% árið 2025, það lægsta frá 2020. Gallup áætlar að þessi skortur á sterkum tengslum og helgun kosti heimsbúskapinn um 10 milljarða bandaríkjadala í tapaðri framleiðni, eða sem nemur um 9% af vergri heimsframleiðslu.
Ísland stendur sig þó vel í alþjóðlegum samanburði – og er meðal efstu Evrópulanda þegar kemur að helgun starfsfólks og almennri vellíðan.
Staða Íslands góð í samanburði við Evrópu
Á Íslandi eru 23% starfsfólks helgaðir starfi sínu, samanborið við 20% að meðaltali á heimsvísu og 12% í Evrópu.
Þetta er svipuð staða og á Norðurlöndunum að jafnaði, þar sem helgunin mælist um 20% – Svíþjóð þó hæst (25%) en Finnland lægst (14%).
Í Bandaríkjunum mælist helgun starfsfólks 32%, en í Egyptalandi aðeins 4%.
„Sterk helgun starfsfólks er lykilforsenda árangurs,“ segir Tómas Bjarnason, sviðsstjóri Stjórnendaráðgjafar Gallup.
„Við sjáum að vinnustaðir sem leggja áherslu á framúrskarandi stjórnun, traust og tilgang, skapa starfsumhverfi þar sem fólk vill leggja sig fram og þróast í starfi.“
Ísland í öðru sæti þegar kemur að vellíðan
Skýrslan sýnir að 78% starfsfólks á Íslandi dafna (thriving), samanborið við 49% í Evrópu og 34% á heimsvísu.
Aðeins Finnland mælist hærra (81%), og eru öll Norðurlöndin meðal efstu tíu þjóða heims á þessum mælikvarða.
Á Íslandi telja einungis 0,25% starfsfólks sig „þjást“ (suffering), sem er eitt lægsta hlutfall á heimsvísu.
Færri neikvæðar tilfinningar – svipuð streita
Íslendingar upplifa almennt færri neikvæðar tilfinningar á vinnustað en flestir aðrir:
Depurð og reiði eru sjaldgæfari á Íslandi en annars staðar í Evrópu, en streita er álíka mikil og víða annars staðar.
Einmanaleiki mælist einnig mun minni á Íslandi (8%) en á Evrópumeðaltali (13%) og heimsvísu (22%).
Sterk staða á vinnumarkaði
Skýrslan sýnir einnig að 78% Íslendinga telja nú góðan tíma til að finna starf, samanborið við 57% í Evrópu og 52% á heimsvísu.
Það endurspeglar traustan vinnumarkað og stuðlar að minni þjáningu meðal starfsfólks.
Aðeins lítilleg lækkun í helgun á heimsvísu
Þrátt fyrir sterka stöðu Íslands hefur orðið svipuð þróun og annarsstaðar í heiminum. Á heimsvísu hefur helgun dregist saman tvö ár í röð og er nú lægri en hún hefur verið síðan 2020.
„Aukin ábyrgð og hraðar tæknibreytingar geta haft áhrif á helgun stjórnenda og þar með starfsfólks,“ segir Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafi hjá Gallup .
„Leiðtogar og stjórnendur gegna lykilhlutverki í því að skapa tengsl, tilgang og jafnvægi í vinnunni. Það skilar sér í meiri vellíðan, minna álagi og betri árangri.“
Um rannsóknina
State of the Global Workplace 2026 byggir á gögnum sem safnað var meðal 263.810 svarenda (þar af 141.444 í vinnu) á árinu 2025. Rannsóknin er hluti af Gallup World Poll og er stærsta langtímarannsókn heims á viðhorfum og líðan starfsfólks.
Nánari upplýsingar um helgun og líðan starfsfólks má finna í heildarskýrslunni hér.

