Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup og ná þær ekki að vera tölfræðilega marktækar. Fylgi flokka breytist um á bilinu 0,1 - 1,5 prósentustig. Tæplega 28% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 24% Vinstri græn, 12% Pírata, nær 11% Framsóknarflokkinn, rúmlega 8% Samfylkinguna, rösklega 6% Bjarta framtíð, ríflega 5% Viðreisn og rúmlega 2% Flokk fólksins. Næstum þrjú prósent nefna aðra flokka og þar af 1,3% Dögun. Næstum 8% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og nær 8% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka febrúar 2017

Stuðningur við ríkisstjórn

Liðlega 41% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina, sem er um þremur prósentustigum minna en í síðustu mælingu. Breytingin á stuðningi við stjórnina er innan vikmarka.

Stuðningur við ríkisstjórn febrúar 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”


Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 28. febrúar 2017. Heildarúrtaksstærð var 5.557 og þátttökuhlutfall var
56,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup