Helstu breytingar á fylgi flokka milli mælinga eru að fylgi við Samfylkinguna minnkar um 2,4 prósentustig og fylgi Miðflokksins eykst um 1,9 prósentustig. Rúmlega 28% þeirra sem taka afstöðu kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, sem er svipað hlutfall og í lok síðata árs. Nær 13% kysu Miðflokkinn, sem er mesta fylgi við flokkinn síðan í febrúar 2020. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1 til 1,7 prósentustig. Næstum 20% kysu Sjálfstæðisflokkinn, nær 9% Framsóknarflokkinn, 8% Pírata, tæplega 8% Viðreisn, nær 7% Flokk fólksins, tæplega 5% Vinstri græn og rösklega 3% Sósíalistaflokk Íslands.
Næstum 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og 9% myndu skila auðu eða ekki kjósa.
Nær 33% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

fylgi_feb

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 29. febrúar 2024. Heildarúrtaksstærð var 9.964 og þátttökuhlutfall var 48,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup