Fylgi flokka breytist lítið milli mánaða, eða um á bilinu 0,1-1 prósentustig. Liðlega 29% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, rösklega 20% Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 10% Pírata, tæplega 9% Miðflokkinn, tæplega 8% Viðreisn, um 7% Framsóknarflokkinn og Flokk fólksins, 6% Vinstri græn og liðlega 4% Sósíalistaflokk Íslands.

Nær 16% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og næstum 9% myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Nær 34% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

fylgismynd_v01.PNG

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. - 31. október 2023. Heildarúrtaksstærð var 10.463 og þátttökuhlutfall var 49,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup