Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, eða 57%. Ríflega 30% eru andvíg og 12% hvorki hlynnt né andvíg.
Landsmenn skiptast í tvo álíka stóra hópa þegar kemur að því hvernig þeir telja líklegast að þeir myndu greiða atkvæði ef framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið (ESB) yrði borið undir þjóðaratkvæði í dag. Rúmlega 52% telja að þau myndu kjósa með því að halda þeim áfram. Tæplega 48% telja að þau myndu kjósa með því að hætta þeim.
Nánari upplýsingar um könnunina og greiningar má sjá hér


