Áhuginn á ferðalögum til Bandaríkjanna hefur minnkað mikið hjá rúmlega helmingi landsmanna og minnkað nokkuð hjá rösklega einum af hverjum tíu. Áhuginn er óbreyttur hjá tæplega fjórðungi landsmanna og hefur aukist hjá ríflega tveimur af hverjum hundrað. Rösklega einn af hverjum tíu segist hvorki hafa haft áhuga á að ferðast til Bandaríkjanna fyrir né eftir að Trump tók aftur við embætti forseta.

2025-06-02 14_52_36-Puls_0525_Ferdalog_BNA.pdf

Áhuginn á ferðalögum til Bandaríkjanna eftir að Trump tók aftur við embætti forseta hefur frekar minnkað hjá konum en körlum og frekar hjá fólki milli fertugs og sextugs en yngra eða eldra fólki. Áhuginn hefur frekar minnkað hjá íbúum höfuðborgarsvæðisins en hjá íbúum landsbyggðarinnar, sem eru aftur á móti líklegri en höfuðborgarbúar til að segjast hvorki hafa haft áhuga á að ferðast til Bandaríkjanna fyrir né eftir að Trump tók við embætti í byrjun árs. Áhugi á ferðalögum til Bandaríkjanna hefur frekar minnkað hjá fólki með meiri menntun en minni, en fólk með minni menntun er líklegra til að segjast hvorki hafa haft áhuga á þeim fyrir né eftir að Trump tók aftur við embætti. Áhugi á að ferðast til Bandaríkjanna hefur helst minnkað hjá þeim sem kysu Samfylkinguna eða Viðreisn ef kosið yrði til Alþingis í dag á meðan áhuginn hefur helst aukist hjá þeim sem kysu Miðflokkinn eða Flokk fólksins. Áhuginn hefur helst haldist óbreyttur hjá þeim sem kysu Miðflokkinn og þar á eftir hjá þeim sem kysu Sjálfstæðisflokkinn.

Nánari upplýsingar má finna hér