Helsta breyting milli mælinga er að fylgi Miðflokksins eykst um rúmlega 3 prósentustig og tæplega 20% kysu flokkinn ef kosið yrði til Alþingis nú. Þetta er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,1 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Liðlega 31% kysi Samfylkinguna, tæplega 17% Sjálfstæðisflokkinn, nær 13% Viðreisn, tæplega 6% Framsóknarflokkinn, rúmlega 5% Flokk fólksins, ríflega 3% Pírata og Vinstri græn og rúmlega 2% Sósíalistaflokk Íslands.

Slétt 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_nov2025_Throunarmynd

Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér