Helstu breytingar milli mælinga eru að fylgi Samfylkingar minnkar um tæplega 3 prósentustig og fylgi Framsóknar og VG eykst um sitt hvort prósentustigið. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,4-1,0 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Rösklega 28% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, rúmlega 20% Miðflokkinn, liðlega 18% Sjálfstæðisflokkinn, um 11% Viðreisn, tæplega 7% Framsóknarflokkinn, nær 6%, Flokk fólksins, rúmlega 4% Vinstri græn, næstum 3% Pírata og rösklega 2% Sósíalistaflokk Íslands.

Næstum 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa og tæplega 14% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_feb2026_Throunarmynd


Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér