Landsmenn eru hlynntari veru Íslands í NATO núna en í fyrra. Ríflega 78% eru hlynnt veru Íslands í NATO en tæplega einn af hverjum tíu andvígur. Hlutfall þeirra sem eru alfarið hlynntir henni hefur hækkað um rúmlega sex prósentustig frá því í fyrra. Mælingin var gerð eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti ítrekað yfir vilja sínum til að Bandaríkin eignuðust Grænland.
Landsmenn eru aftur á móti andvígari því núna en í fyrra að Ísland gangi í Evrópusambandið. Rúmlega 42% eru hlynnt því og sama hutfall er andvígt því.
Nánari greiningar má sjá hér


