Nokkrar sveiflur eru á fylgi flokka milli mælinga. Helsta breytingin er að fylgi Miðflokksins eykst um ríflega 4 prósentustig og rúmlega 16% kysu flokkinn ef kosið yrði til Alþingis nú. Fylgi flokksins hefur ekki mælst hærra síðan á sama tíma í fyrra. Fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks minnkar um 2 prósentustig. Nær 32% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði nú og tæplega 18% Sjálfstæðisflokkinn. Breyting á fylgi Pírata og Vinstri grænna milli mælinga er einnig tölfræðilega marktæk. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,2-0,8 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Rösklega 13% myndu kjósa Viðreisn, nær 6% Flokk fólksins, um 4% Pírata, næstum 3% Vinstri græn, rúmlega 2% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 1% aðra flokka.

Nær 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_okt2025_Throunarmynd

Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér