Í fyrsta sinn hefur iPhone skotið Samsung ref fyrir rass í vali neytenda á Íslandi. Í árlegri Neyslu- og lífstílskönnun Gallup fyrir árið 2025 kemur fram að iPhone er sú tegund farsíma sem flestir Íslendingar kjósa að nota - helmingur landsmanna kýs iPhone fram yfir aðra valkosti. Samsung kemur þar næst á eftir í vinsældum með rúmlega 44% en aðrar tegundir farsíma eru fámennari með einungis um 6% notenda.
iPhone nýtur meiri vinsælda meðal kvenna en karla – nær 54% kvenna kjósa að nota iPhone en tæplega 42% Samsung. Hjá körlum er notkunin nokkuð jöfn milli þessara tveggja tegunda; um 46% nota iPhone og nánast 47% Samsung.
Í aldurshópnum 18–34 ára sker iPhone sig úr sem langvinsælasti kosturinn - tæplega þrír af hverjum fjórum kjósa að nota iPhone, en Samsung nýtur minni vinsælda með um 21% notkun. Munurinn minnkar í aldurshópnum 35–54 ára þar sem notkun er svipuð milli tegunda. Hjá 55 ára og eldri snýst dæmið við – þar kjósa einstaklingar Samsung fram yfir iPhone.
Þegar farsímaval er krosskeyrt við val á fjarskiptafyrirtæki kemur í ljós að iPhone nýtur yfirburða meðal viðskiptavina Nova, þar sem slétt 61% segjast nota iPhone en aðeins um 34% Samsung. Öfug þróun sést hjá viðskiptavinum Símans – tæplega 51% þeirra kjósa Samsung en rúmlega 44% iPhone. Hjá Vodafone eru tölurnar líkar, með ríflega 49% iPhone notendur og nánast 44% sem kjósa að nota Samsung. Hér hefur aldur viðskiptavinahóps fjarskiptafélagana áhrif.
Skýr munur sést líka ef notendur eru skoðaðir eftir stjórnmálaskoðunum. Stuðningsfólk Viðreisnar stendur einna fastast við iPhone – nánast 68% þeirra nota iPhone á móti tæplega 26% sem nota Samsung. Flokkur fólksins skar sig aftur á móti úr með nær 63% sem kjósa að nota Samsung og einungis um 27% iPhone. Hjá Sjálfstæðisflokknum notar rúmlega helmingurinn iPhone og tæplega 46% Samsung.