Í gær, þann 12. mars 2026 hélt Stjórnendaráðgjöf Gallup árlegan morgunverðarfund þar sem kastljósinu var beint að mikilvægi þróunar og vexti bæði stjórnenda og starfsfólks. Þá var spurningum velt upp hvert framtíðin er að taka okkur og hvernig stjórnendahlutverkið er að breytast á tímum gervigreindar.
Að loknum erindum voru Stjórnendaverðlaun Gallup veitt þeim stjórnendum sem hafa sýnt framúrskarandi árangur – bæði hvað varðar helgun starfsfólks og rekstrarlegum þáttum.
Verðlaunahafar ársins 2026 eru:
- Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka
- Óskar Sigurgeirsson, forstöðumaður hugbúnaðarlausna hjá Landsbankanum
- Magnús Freyr Erlingsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO) hjá Travel Connect
- Jónína Vilhjálmsdóttir, sviðsstjóri þróunar hjá EFLU
- Hafdís Þóra Hafþórsdóttir, aðstoðarforstjóri (Deputy CEO) hjá Nordic Visitor
Verðlaunahafarnir voru valdir úr hópi stjórnenda sem mælast í efstu 10% þegar kemur að helgun starfsfólks í alþjóðlegum gagnabanka Gallup en hann inniheldur um 64 milljónir svara. Yfir fimmtíu stjórnendur uppfylltu skilyrðin og bárust alls sautján tilnefningar frá mannauðsstjórum níu fyrirtækja, ásamt rökstuðningi.
Helgun starfsfólks (e. employee engagement) vísar til þátttöku og áhuga starfsfólks á vinnu sinni og tengist mikilvægum árangursmælikvörðum fyrirtækja - svo sem framleiðni, gæðum, öryggi og starfsmannaveltu. Rannsóknir Gallup sýna að stjórnendur gegna lykilhlutverki í að skapa skilyrði helgunar, en allt að 70% af breytileika í helgun teymis má rekja til stjórnenda.
Við hjá Gallup óskum Kristínu Hrönn, Óskari, Magnúsi, Jónínu og Hafdísi innilega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum þeim fyrir að vera innblástur fyrir aðra stjórnendur og starfsfólk sitt.
Þökkum við einnig þeim fjölmörgu sem sendu inn tilnefningar og þeim sem sáu sér fært að fagna með okkur.


