Hér að neðan er umfjöllun um útvarp frá World Radio Alliance í tengslum við alþjóðadag útvarps sem er í dag, 13. febrúar.
Alþjóðlegar kannanir hafa sýnt að útvarp er sá miðill sem flestir tengja við tilfinningalega og treysta og líklega áhrifaríkasti miðillinn til að koma skilaboðum á framfæri. Tæplega 80% Íslendinga hlusta á útvarp í hverri viku og af þeim tíma sem við notum í að hlusta á hverskyns hljóðefni verður útvarp fyrir valinu í um 70% tilfella. Heildarhlustun á hljóðefni hefur aldrei verið meiri í sögunni og framboð af hlaðvörpum og hljóðbókum hefur aukið hlustun. Útvarpið hefur hins vegar náð að halda stöðu sinni, þrátt fyrir þessa miklu samkeppni.
Ný rýnigögn sýna fram á það að útvarp nær til flestra af öllum hljóðmiðlum sem í boði eru og þrátt fyrir að leiðum til að neyta hljóðefnis hafi fjölgað gríðarlega heldur útvarpið stöðu sinni. Hlustun yfir daginn er lygilega jöfn. Þannig eru um 53-64 þúsund manns að hlusta á útvarpið að jafnaði á hverri klukkustund milli 8 og 18 virka daga og hlustunin fer hátt í 70 þúsund manns þegar hún rís hæst í hádeginu.
Fólk hlustar á útvarpið til að slaka á, það hlustar á útvarpið til að láta sér líða betur, það hlustar á útvarpið til að einbeita sér og það hlustar á útvarpið til að fræðast og frétta hvað er að gerast í heiminum.
Útvarp er sannanlega beintengt þjóðarsálinni og lifir góðu lífi, þrátt fyrir vangaveltur um hið gagnstæða. Á gullöld hljóðefnis stendur útvarpið upp úr og hefur sjaldan verið sterkara.
Á Íslandi hlustar um 80% landsmanna á útvarp vikulega. Þetta hlutfall er svipað á Vesturlöndum, í flestum nágrannalöndum okkar hlusta um 75-85% reglulega. Kannanir hafa sýnt að traust á útvarp er langt umfram flesta aðra miðla. Auglýsendur halda áfram að nota útvarp þrátt fyrir síaukið miðlaframboð. Á Íslandi hefur um 15% auglýsingafjár verið varið í útvarpsbirtingar sem er mjög hátt í alþjóðlegu samhengi. Ástæðan fyrir þessu háa hlutfalli hérlendis er ekki síst sú mikla dekkun sem íslenskt útvarp skilar, erlendis er sjaldgæft að finna útvarpsstöðvar þar sem hlustunin á vinsælustu dagskrárliðina rís jafn hátt. Og auðvitað sú staðreynd að útvarpsauglýsingar skila mjög góðum árangri, hvort sem um virka hlustun eða bakgrunnshlustun er að ræða.
Sjá nánari upplýsingar hér

