Helsta breyting milli mælinga er að fylgi Miðflokksins eykst um tæplega tvö prósentustig. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,2-1,2 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Nær 32% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og er það mesta fylgi sem Samfylkingin hefur mælst með síðan í apríl 2009. Tæplega 21% kysu Sjálfstæðisflokkinn, næstum 14% Viðreisn, nær 11% Miðflokkinn og hátt í 7% Flokk fólksins.
Nær 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rösklega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Tæplega 63% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina, sem er röskum fjórum prósentustigum minna en í síðustu mælingu.

Fylgi_juni2025_Throunarmynd

Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér