Meirihluti landsmanna telur vel hafa verið staðið að útboði og sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka í vor, eða rúmlega 64% á móti tæplega 15% sem telja hafa verið illa staðið að henni. Til samanburðar töldu 6% hafa verið vel staðið að útboði og sölu á hlut ríkisins í bankanum fyrir þremur árum en ríflega 87% illa.

IslandsbankaSala_juli2025

Eins og fyrir þremur árum telja karlar frekar en konur að vel hafi verið staðið að útboði og sölu á hlut ríkisins í bankanum. Íbúar höfuðborgarsvæðisins telja frekar en íbúar landsbyggðarinnar að vel hafi verið staðið að sölunni. Þau sem hafa framhalds- eða háskólapróf telja frekar að vel hafi verið staðið að sölunni en þau sem hafa minni menntun að baki.

Þau sem kysu Viðreisn eða Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag telja helst að vel hafi verið staðið að sölunni á meðan þau sem kysu Miðflokkinn telja helst að illa hafi verið staðið að henni. Þegar spurt var fyrir þremur árum taldi ríflega fjórðungur þeirra sem hefðu kosið Sjálfstæðisflokkinn á þeim tíma að vel hefði verið staðið að sölunni þá, á móti um 1-6% þeirra sem hefðu kosið aðra flokka.

Nánari upplýsingar má finna hér