Helsta breyting milli mælinga er að fylgi Samfylkingarinnar eykst um nær þrjú prósentustig og fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um næstum tvö prósentustig. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,2-0,8 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar fyrir utan lækkun hjá Sósíalistaflokki. Tæplega 35% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og er það sama hlutfall og Samfylkingin hefur mest mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup, í febrúar 2008. Nær 19% kysu Sjálfstæðisflokkinn, hátt í 15% Viðreisn, tæplega 11% Miðflokkinn og næstum 7% Flokk fólksins. Nær 5% kysu Framsóknarflokkinn en fylgi hans hefur ekki mælst lægra síðan mælingar Gallup hófust í júní 1992. Tæplega 4% kysu Pírata, ríflega 3% Vinstri græn, rösklega 2% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 1% aðra flokka.

Liðlega 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_juli2025_Throunarmynd

Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér