Í dag er Jónsmessa. Samkvæmt íslenskri þjóðtrú er Jónsmessunóttin ein af fjórum nóttum ársins sem taldar eru hvað magnaðastar. Hinar næturnar eru jólanótt, nýársnótt og þrettándanótt. Á Jónsmessunótt er náttúran sögð fyllast sérstökum kröftum - jafnvel lækningarmætti.

Eitt þekktasta fyrirbærið sem tengist Jónsmessunótt er döggin. Samkvæmt gamalli trú á að vera mjög heilnæmt að velta sér nakinn upp úr dögginni aðfaranótt Jónsmessu. Geri fólk það eiga allir þeirra sjúkdómar að læknast og það sleppur við að veikjast næsta árið. Þrátt fyrir þetta sögðust einungis 5% Íslendinga ætla velta sér upp úr dögginni í ár.

Þó fáir veltist í dögg nú til dags, eru það engu að síður um 60% Íslendinga sem þekkja til Jónsmessu og telja sig vita um hvað hún snýst. Þekkingin er þó nokkuð breytileg eftir landshlutum - 73% Sunnlendinga telja sig þekkja vel til Jónsmessu en einungis 58% íbúa höfuðborgarsvæðisins og Norðurlands.