Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,2-1,5 prósentustig. Rúmlega fjórðungur þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Nær 18% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, liðlega 14% Vinstri græn, 11% Pírata, tæplega 10% Framsóknarflokkinn, næstum 8% Miðflokkinn og Viðreisn og ríflega 4% Flokk fólksins. Rúmlega 2% segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag, þar af liðlega 1% Bjarta framtíð. Tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rösklega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka apríl 2018

Stuðningur við ríkisstjórn

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um rúmlega 2 prósentustig milli mánaða, en ríflega 58% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn apríl 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 27. mars til 29. apríl 2018. Heildarúrtaksstærð var 6.766 og þátttökuhlutfall var 56,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup