Nær 92% Íslendinga segja líklegt að þeir þiggi bólusetningu gegn COVID-19, ríflega 5% segja það ólíklegt og um 3% segja það hvorki líklegt né ólíklegt. Í byrjun september sögðu níu af hverjum tíu það líklegt. Þeim hefur fjölgað mikið sem segja öruggt að þeir þiggi bólusetningu, en nær 65% segja það öruggt nú miðað við tæplega 49% í haust.

Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú þiggir bólusetningu gegn COVID-19 þegar byrjað verður að bjóða upp á hana?

Fólk yfir fertugu er líklegra til að þiggja bólusetningu en þeir sem yngri eru. Þeir sem kysu Framsóknarflokkinn, Pírata, Viðreisn eða Vinstri græn ef kosið yrði til Alþingis í dag eru líklegri til að þiggja bólusetningu en þeir sem kysu aðra flokka.

Hvers vegna er ekki líklegra að þú þiggir bólusetningu þegar byrjað verður að bjóða upp á hana?

Af þeim sem segja ekki líklegt að þeir þiggi bólusetningu segja flestir ástæðuna vera þá að þeir vilji bíða eftir að það verði komin meiri reynsla á bólusetninguna og mögulegar aukaverkanir hennar, eða sjö af hverjum tíu.

Spurt var:

  • Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú þiggir bólusetningu gegn COVID-19 þegar byrjað verður að bjóða upp á hana?
  • Hvers vegna er ekki líklegra að þú þiggir bólusetningu þegar byrjað verður að bjóða upp á hana?

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 14. - 27. desember 2020.

Þátttökuhlutfall var 51,3%, úrtaksstærð 1.600 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup