Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða ef undan er skilinn Flokkur fólksins sem eykur áfram fylgi sitt. Tæplega 11% segjast myndu kjósa Flokk fólksins færu kosningar til Alþingis fram í dag. Ekki er tölfræðilega marktæk breyting á fylgi annarra flokka milli mánaða en fylgi þeirra breytist um 0,1 - 1,7 prósentustig.

Rúmlega 26% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, tæplega 20% Vinstri græn, liðlega 13% Pírata, nær 11% Framsóknarflokkinn, næstum 10% Samfylkinguna, um 5% Viðreisn og næstum 3% Bjarta framtíð. Ríflega 2% nefna aðra flokka, þar af nær 2% Dögun.

Rúmlega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 10% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka ágúst 2017a

Stuðningur við ríkisstjórn

Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um prósentustig milli mánaða en nær 34% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn ágúst 2017a

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 10. til 30. ágúst 2017. Heildarúrtaksstærð var 4.108 og þátttökuhlutfall var 52,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-2,1%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup