Helstu breytingar á fylgi flokka milli fyrri hluta septembermánaðar annars vegar og nýliðinnar viku hins vegar eru að fylgi Flokks fólksins eykst um liðlega tvö prósentustig, en 7% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka, eða á bilinu 0,1-1,7 prósentustig. Rúmlega 21% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 13% Framsóknarflokkinn, næstum 13% Samfylkinguna, tæplega 12% Pírata, liðlega 10% Vinstri græn, sama hlutfall Viðreisn, ríflega 7% Sósíalistaflokk Íslands, rúmlega 6% Miðflokkinn og 0,6% Frjálslynda lýðræðisflokkinn. Tæplega 7% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og rösklega 5% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

2021-09-21 Fylgi flokka

Nær 53% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina, sem er fjórum prósentustigum minna en í síðustu mælingu.

2021-09-21 Stuðningur við ríkisstjórn

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 13. til 19. september 2021. Heildarúrtaksstærð var 3.845 og þátttökuhlutfall var 52,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 1,1-1,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup