Helsta breytingin á fylgi flokka frá síðustu mælingu er sú að Vinstri græn bæta við sig fylgi eftir að hafa dalað nokkuð í síðustu mælingu. Tæplega 13% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,1-0,8 prósentustig. Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 15% Samfylkinguna, hartnær 14% Pírata, tæplega 11% Viðreisn, um 10% Miðflokkinn, nánast 8% Framsóknarflokkinn, nálega 4% Sósíalistaflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins. Tæplega 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Slétt 56% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 4. til 31. ágúst 2020. Heildarúrtaksstærð var 9.479 og þátttökuhlutfall var 51,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup