Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um liðlega sex prósentustig milli mælinga og segist rúmlega 61% þeirra sem taka afstöðu styðja hana. Stuðningur við stjórnina hefur ekki mælst meiri síðan í febrúar 2018.

Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna eða á bilinu 0,2-1,6 prósentustig. Liðlega fjórðungur segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 14% Samfylkinguna og sama hlutfall Vinstri græn. Rösklega 10% segjast myndu kjósa Pírata, 10% Viðreisn, nær sama hlutfall Miðflokkinn, ríflega 8% Framsóknarflokkinn, rúmlega 4% Flokk fólksins og 4% Sósíalistaflokkinn. Tæplega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. mars til 3. maí 2020. Heildarúrtaksstærð var 11.028 og þátttökuhlutfall var 55,7%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup