Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um fjögur prósentustig milli mánaða en tæplega 52% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana. Er þetta mesti stuðningur við ríkisstjórnina síðan í júní síðastliðnum.

Fylgi flokka

Fylgi flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,7 prósentustig, og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Tæplega 24% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúm-lega 16% Samfylkinguna, ríflega 13% Vinstri græn, liðlega 11% Pírata og nær sama hlutfall Viðreisn. Næstum 9% segjast myndu kjósa Miðflokkinn, 8% Framsóknarflokkinn, 4% Flokk fólksins og tæplega 4% Sósíalistaflokk Íslands. Tæplega 13% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 5. til 30. apríl 2019. Heildarúrtaksstærð var 5.189 og þátttökuhlutfall var 57,7%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup