Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga og segjast tæplega 57% þeirra sem taka afstöðu styðja stjórnina.

Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna eða á bilinu 0,2-0,9 prósentustig. Slétt 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 15% Samfylkinguna, tæplega 14% Vinstri græn, næstum 11% Pírata, tæplega 11% Viðreisn, rúmlega 10% Miðflokkinn, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, nær 4% Sósíalistaflokkinn og nær sama hlutfall Flokk fólksins. Liðlega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og sama hlutfall segist myndi skila auðu eða ekki kjósa.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 30. júní 2020. Heildarúrtaksstærð var 10.274 og þátttökuhlutfall var 51,7%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup