Fylgi flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,9 prósentustig, og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar.

Næstum 24% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 15% Samfylkinguna, 13% Vinstri græn, rösklega 11% Miðflokkinn og nær sama hlutfall Pírata, liðlega 10% segjast myndu kjósa Viðreisn, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, rúmlega 4% Flokk fólksins og 3% Sósíalistaflokk Íslands.

Tæplega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og ríflega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Tæplega 51% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 31. maí til 30. júní 2019. Heildarúrtaksstærð var 5.910 og þátttökuhlutfall var 53,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,7%.

Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup