Enn er afar mjótt á munum þegar spurt er um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þegar tveir dagar eru í atkvæðagreiðslu segja fleiri nei í Þjóðarpúlsi Gallup, eða 51,6% á móti 48,4% sem segja já, en vikmörk eru +/- 2,4% og munurinn mælist því ekki tölfræðilega marktækur. Í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup sem var birtur um miðjan mánuðinn sögðu fleiri já en nei en munurinn var þá heldur ekki tölfræðilega marktækur.
Nánari upplýsingar um mælinguna má finna hér

