Afar mjótt er á munum þegar spurt er um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu í lok sumars. Rétt rúmlega helmingur landsmanna telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.
Fólk undir þrítugu og fólk milli fertugs og fimmtugs er líklegra en fólk á öðrum aldri til að greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður á ný. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru sömuleiðis líklegri til þess en íbúar landsbyggðarinnar og fólk með háskólamenntun frekar en fólk með minni menntun að baki. Gríðarlegur munur er á viðhorfi fólks eftir því hvaða flokk það kysi ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þau sem kysu Viðreisn eru líklegust til að greiða atkvæði með því að aðildarviðræður hefjist að nýju en þau sem kysu Miðflokkinn ólíklegust. Þau sem styðja ríkisstjórnina eru líklegri en þau sem styðja hana ekki til að greiða atkvæði með því að taka upp viðræður á ný en eins og sést í greiningunni eru þau sem kysu stjórnarflokkana, sérstaklega Viðreisn eða Samfylkingu, einna líklegust til að greiða atkvæði með því ásamt þeim sem kysu Vinstri græn.
Nánari upplýsingar um mælinguna má finna hér

