Svo mjótt er á munum þegar spurt er um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu í lok mánaðarins að ekki er hægt að fullyrða hvort fleiri myndu segja já eða nei. Í könnuninni segjast 51,5% þeirra sem taka afstöðu að þau muni kjósa já en 48,5% segjast munu kjósa nei. Vikmörk eru 2,5 prósentustig og því er ekki tölfræðilega marktækur munur á milli já og nei. Helsta breytingin frá því í júní er að fólk virðist vera ákveðnari í afstöðu sinni ýmist já eða nei.
Nánari upplýsingar um mælinguna má finna hér

