Þann 4. nóvember næstkomandi stendur Mannauðsrannsóknir og -ráðgjöf Gallup fyrir fjarnámskeiði á netinu um styrkleikamiðað vinnuumhverfi og leiðir til að auka þekkingu okkar og vitund um eigin styrkleika. Allir þátttakendur taka CliftonStrengths styrkleikamat Gallup og vinna með sínar niðurstöður á námskeiðinu. Sjá dæmi um CliftonStrengths niðurstöður

Um 90% Fortune 500 fyrirtækja nota CliftonStrengths styrkleikamatið til að draga fram hæfileika fólks og nýta þá til fulls. Matið er á ensku og tekur um 30-40 mínútur að fylla það út rafrænt. Niðurstöðurnar eru settar fram í 34 flokkum, einskonar styrkleika DNA, sem endurspegla þá hæfileika sem viðkomandi ætti að einblína á til að ná betri árangri í leik og starfi.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja þekkja eigin styrkleika og leiðir til að vinna með þá, jafnt stjórnendur og starfsfólk. Leiðbeinendur eru Marta Gall Jörgensen og Sóley Kristjánsdóttir, sérfræðingar á sviði mannauðsmála hjá Gallup.

Næsta námskeið: 4. nóvember 2020, kl. 9:00-11:30 (UPPSELT)
Verð: 19.800 kr. (10% afsláttur ef fleiri en einn sækir námskeið frá sama vinnustað)
Staðsetning: Fjarnámskeið á netinu