Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða en fylgi Framsóknarflokksins minnkar á sama tíma og fylgi Viðreisnar, Vinstri grænna og Sósíalistaflokksins eykst. Rösklega 15% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, sem er um tveimur prósentustigum færri en í síðustu mælingu. Tæplega 9% segjast myndu kjósa Viðreisn og Vinstri græn og ríflega 5% segjast myndu kjósa Sósíalistaflokk Íslands en fylgi allra þessara flokka eykst milli mánaða. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða um á bilinu 0-1,1 prósentustig. Liðlega 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 15% Pírata, næstum 14% Samfylkinguna, tæplega 7% Flokk fólksins og rösklega 4% Miðflokkinn.

Fylgi flokka í júlí 2022

Rúmlega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og liðlega 9% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Rösklega 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn, stjórnarflokka og afstaða

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöðurnar sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. júlí til 1. ágúst 2022. Heildarúrtaksstærð var 9.705 og þátttökuhlutfall var 49,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup