Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,2 – 0,7 prósentustig. Rösklega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, tæplega 17% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, nær 14% Framsóknarflokkinn, um 13% Pírata, rösklega 8% Vinstri græn og sama hlutfall Viðreisn. Rúmlega 5% segjast myndu kjósa Flokk fólksins, 5% Sósíalistaflokk Íslands og sama hlutfall Miðflokkinn.
![Fylgi flokka október 2022](https://cdnx.gallup.is/media/images/2022-11-03_Fylgi_flokka_okt_2022.width-800.jpg)
Nær 15% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 10% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Stuðningur við ríkisstjórnina er óbreyttur frá síðustu mælingu en rösklega 49% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.
![Stuðningur við ríkissstjórn og afstaða október 2022](https://cdnx.gallup.is/media/images/2022-11-03_Studningur_vid_rikissstjorn_og_afst.width-800.jpg)
Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:
- Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
- En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
- Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
- Styður þú ríkisstjórnina?
Niðurstöðurnar sem hér birtast um fylgi flokkana á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3 – 31. október 2022. Heildarúrtaksstærð var 8.267 og þátttökuhlutfall var 49,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,8 - 1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.