Fylgi flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,1 prósentustig, og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Rúmlega 23% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, tæplega 17% Samfylkinguna, ríflega 12% Vinstri græn, liðlega 11% Pírata og nær sama hlutfall Viðreisn, 10% segjast myndu kjósa Miðflokkinn, rösklega 8% Framsóknarflokkinn, nær 4% Sósíalistaflokk Íslands og rúmlega 3% Flokk fólksins. Nær 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og tæplega 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Um helmingur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. til 30. maí 2019. Heildarúrtaksstærð var 6.125 og þátttökuhlutfall var 53,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,6%.

Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup