Miðflokkurinn og Píratar bæta við sig rúmlega prósentustigi hvor flokkur milli mánaða samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Að sama skapi minnkar fylgi Samfylkingarinnar um rösklega prósentustig. Nær 13% segjast myndu kjósa Miðflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, rúmlega 10% Pírata og næstum 16% Samfylkinguna. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-0,9 prósentustig. Næstum 22% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, tæplega 14% Vinstri græn, nær 11% Viðreisn, nálægt 8% Framsóknarflokkinn, nær 4% Flokk fólksins og 3% Sósíalistaflokk Íslands. Tæplega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Um helmingur þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 28. október til 1. desember 2019. Heildarúrtaksstærð var 11.663 og þátttökuhlutfall var 53,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup