Sjálfstæðisflokkurinn fengi næstum 23% fylgi ef kosið yrði til Alþingis í dag samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Rúmlega 17% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, rösklega 13% Vinstri græn, tæplega 12% Miðflokkinn, ríflega 10% Viðreisn, 9% Pírata, liðlega 8% Framsóknarflokkinn, nær 5% Flokk fólksins og tæplega 3% Sósíalistaflokk Íslands. Breyting á fylgi flokka milli mánaða eru um 0,3-1,4 prósentustig. Nær 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Tæplega 51% þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 30. september til 27. október 2019. Heildarúrtaksstærð var 9.798 og þátttökuhlutfall var 53,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup