Litlar breytingar voru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0 - 1,8 prósentustig. Rúmlega fjórðungur sagði að Samfylkingin yrði fyrir valinu færu kosningar fram til Alþingis í dag, sem er mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í nóvember 2009. Tæplega 24% sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúmlega 11% Framsóknarflokkinn, rösklega 10% Pírata, ríflega 7% Viðreisn, nær 7% Vinstri græn, rösklega 5% sögðust myndu kjósa Miðflokkinn, sama hlutfall Flokk fólksins og ríflega 4% Sósíalistaflokk Íslands.

Tæplega 17% tóku ekki afstöðu eða vildu ekki gefa hana upp og rúmlega 9% sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Rösklega 46% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina.

fylgi_flokka_januar2023_v02.PNG

Eftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir í könnuninni:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 6. til 31. janúar 2023. Heildarúrtaksstærð var 9.842 og þátttökuhlutfall var 48,5%. Vikmörk á fylgi við flokka eru allt að 1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup