Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,2 - 1,3 prósentustig. Nær 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðis-flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, liðlega 18% Framsóknarflokkinn, rúmlega 13% Pírata, liðlega 11% Samfylkinguna, tæplega 11% Vinstri græn, næstum 10% Viðreisn, tæplega 8% Flokk fólksins, nær 4% Miðflokkinn og sama hlutfall Sósíalistaflokk Íslands.

Fylgi flokka í febrúar 2022

Næstum 7% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og nær 9% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Slétt 58% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn, stjórnarflokka í febrúar 2022

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 28. febrúar 2022. Heildarúrtaksstærð var 9.672 og þátttökuhlutfall var 49,7%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup